Árgangur ´83

Þotuliðið frá Hellu

23.05.2008 15:50:26 / hella83

Túmorró

Jæja nú er þetta að fara að bresta á!
Mæting er kl. 15:00 fyrir framan sundlaugina, endilega koma með sundföt!
Ég var að finna video frá busuninni okkar og vá hvað ég hlakka til að horfa á það með ykkur, bara snilld.
Hlakka til að sjá ykkur sem allra allra flest á morgun.

Ólöf :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 20:27:17 / hella83

Jæja það styttist óðum í 24. maí.....

eru ekki allir orðnir spenntir????

Planið er sem sagt að hittast fyrir utan gamla skólann okkar klukkan 15.00 og gera eitthvað skemmtilegt8)

Svo er stefnan tekin á Árhús þar sem Grillið  (gamla góða) er ekki lengur til staðar;) þar munum við fá okkur eitthvað gott að borða og horfa saman á Júróvísjón....

Ef einhverjir eru með einhverjar hugmyndir um hvað við getum gert eftir júróvísjón þá eru allar hugmyndir vel þegnar í commentabankann:)

Svo væri nú ekki leiðinlegt er þið lumið á einhverjum gömlu myndum af okkur að kippa þeim með...ég er sko búin að finna nokkrar:haha: Við vorum sko hrikalega mikil krútt!!!

Jæja allir að koma með hugmyndir.......

sjáumst svo hress 24. maí.....





» 6 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 23:21:39 / hella83

Sæl nú öll sömul

Gaman að sjá þetta framtak og vonandi að það verði eithvað að þessu hjá okkur. 'eg hlakka allanvega til.kveðja Maggi Rúnars. 'A maður að skrá sig einhvernvegin á þessa síðu, hvernig virkar þetta?????????? Kann ekkert á þetta blogg:

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 18:45:57 / hella83

Betur má ef duga skal

Jæja, nú finnst mér kominn tími til að við förum að reyna að skipuleggja e-ð. Finna símanúmer og spjalla við fólk sem er ekkert með á þessarri síðu. Einnig þarf að ákveða hvað við ætlum að gera því við höfum rosalega gott af því að leika okkur soldið saman en ekki bara að hittast, éta og fara á fyllerí þó það sé að sjálfsögðu partur af programmet. Hver er memm í liði að fara að gera e-ð í málunum. Ég er að spá í að hafa stelpupartý/opiðhús heima 12.apríl í kópó það væri gaman að vita hverjir væru geim að koma í öller og spjalla e-ð um þetta (gisting í boði ef þess er óskað- Samt bara í gestaherberginu) hehehehehehehehehe:haha::haha::haha:
Kveðja Vigdís ofurfyndna:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 20:43:02 / hella83

Hæ stelpur og strákar:)

Það mega gjarnan fleiri fá aðgang til að halda þessarri síðu virkri... bara setja í komments og ég sendi sms....KV. V

ER DAGURINN ÞÁ 24.MAÍ Á LAUGARDEGINUM????  
Hvað kom út úr fundi nefndarkvenna um páskana, bið um skýrslu á skriflegu formi þar sem ég og fleiri vorum vant við látin:)


Happy times:klikk::klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 16:41:01 / hella83

Gleðilega Páska

og þið afmælisbörn í mars til hamingju:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 17:09:49 / hella83

hæhæ

Hvernig lýst mönnum og konum á helgarnar 23-25 maí eða helgina13-15júní??
Þar sem að við Bogga erum úti þær helgar sem um ræddi hér áður. Endilega setja í komment
Kveðja Vigdís

» 12 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 11:00:28 / hella83

Varðandi þetta reunion (er til íslenskt orð yfir þetta?)

Já sæl

Ég og Tóta erum alveg æstar í að halda þetta reunion í sumar. Þar sem við elskum nefndarstörf þá ætlum við að bjóða okkur fram til þess að vera í nefnd og gaman væri að fá kannski einhvern einn enn með okkur. Þ.e.a.s. ef að við verðum samþykktar sem ég býst fastlega við sökum þess hvað við erum þekktar fyrir einstaka skipulagshæfileika og almenn skemmtilegheit :haha:
Okkur langar til þess að halda þetta í byrjun sumars því að þá finnst okkur mestar líkur á að sem flestir komist. Mér finnst síðasta helgin í maí eða sú fyrsta í júní hljóma vel.  Mér finnst líka laugardagur henta best en auðvitað væri alveg hægt að hafa þetta á föstudegi.
Nenniði endilega að kommenta á hvaða dagssetning hentar ykkur best!!
Og endilega bætiði við fleiri tenglum...
 Kv. ÓB

» 11 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 10:33:42 / hella83

hver kann að setja linka inn á þessa síðu

ég kann ekkert á þetta eftir breytinguna þarna um daginn. Langar að setja linka á bloggin okkar og myspace-in  kann einhver?
HJÁLP....kveðja finnbogadóttir 

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 10:05:15 / hella83

Vá það eru engin smá viðbrögð:)

Ég er ekkert smá ánægð með ykkur:)
Ólöf
Bogga
Tóta
Elías
Björg
Sigurfinna
Vigdís

Strax komin 7 af 17 Þá vantar bara

Dýu
Önnu Maríu
Margréti
Sigga Hauk
Inga Hlyn
Magga
Jón
Atla Má
Þorvarð Helga
Sigrún Helga

Það er greinilegt að orðið spreddast hratt í netheimum:)
Kveðja Vigdís
P.s Endilega setjið uppdeit af ykkur hérna inn það er svo gaman fyrir hina að lesa


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 20:32:13 / hella83

Öppdeit

Mikið líst mér ofboðslega vel á að reyna að koma þessari síðu í gang :)

Ég ætla að byrja að segja frá því hvað ég hef verið að brasa síðan í grunnskóla.....
Ég fór beint í FSu og útskrifaðist þaðan af náttúrufræðibraut jólin 2002. Þegar þeim áfanga var náð ákvað ég að taka mér smá pásu frá námi og vann í sundlauginni á Hellu í eitt og hálft ár. Haustið 2004 flutti ég, saklausa sveitastelpan, til stórborgarinnar og hóf nám í HÍ við matvæla- og næringarfræðiskor. Þetta nám tók þrjú ár og við lok þess var ég komin með nóg af litlu skókassaíbúðinni minni við Eggertsgötuna og fann að stórborgarlífið átti ekkert vel við mig (enda hreinræktaður sveitadurgur) þannig að ég tók þá stóru ákvörðun að flytja aftur heim í sveitasæluna. Þegar ég var í þann mund að fara að flytja heim þá skellti ég mér á þjóðó og sé ég ekki eftir því, þar nefnilega krækti ég í (eða var það öfugt? ) hann Lalla minn sem er íþróttakennari á Hvolsvelli. Við búum núna á Hvolsvelli, sem er btw ekkert eins mikið skítapleis og ég hélt ;) Það er alla vega voða notalegt að búa hér. Ég er að vinna í grunnskólanum á Hellu og er að kenna bæði íþróttir og efnafræði. Það er bara fyndið hvað það hefur lítið breyst síðan við vorum þarna. Fullt af gömlu kennurunum okkar eru ennþá að kenna þarna eins og t.d. Sigurgeir, Súsanna, Siggalína, Hafdís og Svava. Það má eiginlega segja að ég sé komin í hring núna, komin aftur á sama stað og ég byrjaði á.... bara hinum megin við borðið :p Ég byrjaði í enn einum skólanum síðastliðið haust en þá byrjaði ég í fjarnámi í Kennó og ætla að taka kennsluréttindin en það mun taka mig 2 ár. Meðfram vinnunni og náminu er ég að þjálfa grunnskólastelpur í körfubolta sem er hrikalega skemmtileg aukavinna.
Jæja þetta varð aðeins lengra en ég ætlaði mér. Hvernig líst ykkur annars á að hafa reunion næsta sumar? Það eru reyndar 9 ár síðan við kláruðum skólann en mér finnst það nú ekki skipta öllu máli ef að áhugi er fyrir hendi.
Vona að þið látið vita af ykkur!!
Kveðja Ólöf



» 5 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 09:31:38 / hella83

hæhæ

Ég er semsagt búin að setja upp síðu fyrir okkur til að við getum spjallað saman ef þið viljið setja inn á síðuna hafið þá samband og ég læt ykkur fá en það er bara skemmtilegt ef fleiri eru virkir. Ég er búin að segja Boggu frá og hún er með aðgang en annars erum við bara tvær í augna blikinu. Eins og marg oft hefur verið rætt um væri gaman að enda á niðurstöðu um að bekkjarsystkinin myndu hittast og bralla eitthvað saman. Það væri líka gaman ef þið mynduð setja inn smá uppdeit um ykkur því maður veit ekki hvað helmingurinn af ykkur er að gera. Ég skal byrja

Ég bý í borg óttans, n.t.t Kópavogi og var að klára sveinspróf í hársnyrtiiðn núna um jólin. Núna er ég að vinna upp gamlar syndir í F.B og ætla að verða stúdent á næsta ári. Ég er í sambúð með honum Sæma mínum úr Gunnarsholti og þann 9.ágúst ætlum við að verða herra og frú í Oddakirkju. Við eigum engin börn en eigum 5 gullfiska sem Sæmi heldur lífi í því stóri gullfiskurinn á heimilinu (ég) get ekki eða varla haldið lífi í blómunum:)
Síðan í útskrift úr GrskHellu er ég búin að bralla margt. Byrjaði í Fsu og fór síðan í Iðnskólann að læra að sauma, síðan í hárið og svo stúdentinn en planið í dag er að fara til Big Britain þar sem Sæmi ætlar í doktorsnám anywho.... eins og er vinn ég fyrir austan í sundlauginni aðra hverja helgi og það er ósköp ágætt. Svo fyrir þá sem ekki vita sem ég held þó að allir viti er að ég er 3 systrum ríkari en ég var back in 1999 en þær eru 4ra ára (Jóna og Svandís) og Anna Lísa er 3ja ára í vor

OG nú er komið að ykkur
Kveðja Vigdís8) 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 6267
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Litlu krúttin